Mx-girlz - fyrir ALLAR stelpur sem stunda motocross!
Könnun
hvernig væri að lífga aðeins uppá síðuna?, blogga og fleira?




06.06.2008 13:19:31 / freyz

Fyrsta keppni sumarsins - 30 á ráslínu ;)

Hæ, hæ stelpur ;)

Er ekki kominn tími til að hrissta aðeins upp í síðunni? Ég er búin að vera frekar upptekin þar sem ég er að flytja til útlanda í júlí svo ég hvet ykkur endilega til að vera virkar á síðunni og plana hittinga reglulega, alltof langt síðan síðast :S

Annars er fyrsta keppnin á morgun og mikil spenna í loftinu, enda mjög margar stelpur búnar að æfa MJÖG mikið í vetur og m.a. verið í æfingabúðum erlendis! Ég ætla að vera klappstýra en hlakka samt ekkert smá til að mæta og horfa á! ;)

Annað mál á dagskrá eru Mx-Girlz fötin og afslættirnir sem við höfum verið með hjá Merkt í Skeifunni, eigum við ekki að halda því áfram?

Gangi ykkur sem eru að keppa á morgun rosalega vel :)

Sjáumst,

Freyja

» 5 hafa sagt sína skoðun

01.06.2008 19:04:26 / Einey

Sólbrekka

 


Hverjar ætla að keppa í sólbrekku??


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2008 20:16:34 / anita

Hola:D

Hæhæ stelpur:)
ég veit ekki hvort einhverjum langi að kíkja á þetta en hér eru alltaf reglulega nýjar myndir frá keppnum og æfingum hérna á spáni;)

www.blog.central.is/mx-anita


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 13:25:11 / kag

Answer 2008

Stelpur !!

 Endilega kíkjið á þessa síðu og skoðið gallann hja MxSport.is

Þeir eru að selja Answer 2008  :)

http://www.mxsport.is/xodus_product.aspx?id=1115&MainCatID=-99


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 20:14:51 / freyz

Listinn góði ;)

Hæ stelpur.

 Takk fyrir síðast þið sem mættuð í keiluna ;)

Eins og flestar vita þá er ég búin að vera að reyna að setja saman upplýsingalista um allar stelpur í MxGirlz ;) Ég er búin að fá rosalega góð viðbrögð (43 tölvupósta með upplýsingum) en er í smá veseni. Það eru 4 notendanöfn sem hafa sent mér upplýsingar um sig sem eru með tölvupóst sem virðist ekki virka, eða ég fékk allavega tölvupóstinn sem ég sendi í gær aftur í hausinn. Ef að þið sjálfar sjáið þetta, eða einhverjar sem þekkja þær, endilega látið mig vita rétt netföng ef þessi eru röng.

Það eru þessi notendanöfn og netföng:

AndreaT andreasinafina@hotmail.com
Inga Karen ingibjorg_karen@hotmail.com
KristínE kristinegilsdottir@hotmail.com
Rúna runas@hi.is

Annars eru enn einhverjar sem eiga eftir að senda mér upplýsingarnar en það eru þessi notendanöfn: (annað hvert dökkt svo það sé auðveldara að skoða)

1.Agnes, 2. Andrea, 3. Anita, 4. Aníta Erla, 5. Arorabjork, 6. Bára, 7. Berglind, 8. Bryndís, 9. Dísa, 10. Erla, 11. Erla Perla, 12. Erlan, 13. Gerður, 14. Guðný, 15. Guðný Ósk, 16. Gunna, 17. Helgaa, 18. Inga, 19. Ingibjörgg, 20. Ingunn, 21. Kara, 22. Linda Maja, 23. LindaMaja, 24. mamma moto, 25. Margret Sara, 26. Ragnhildur, 27. Raquel, 28. S_Bára, 29. Sara, 30. Signyh, 31. Soley, 32. Stella, 33. Tedda.

Það væri mjög gaman að fá upplýsingarnar um þessar líka, en mig grunar að einhverjar séu samt óvirkar en þá væri got að vita það ;) (hér eru spurningarnar http://www.blog.central.is/motostelpur/index.php?page=viewPage&id=1544280 )

Hinn listinn er semsagt nánast tilbúinn en ég ætla að vonast til að fá einhver svör við þessari færslu og sjá hvort einhverjar bætist í hópinn :D

Takk, takk.

Freyja

P.S. Ef einhver fékk EKKI tölvupóstinn frá mér í gær má sú hin sama endilega senda mér tölvupóst á freyja@mxgirlz.is og láta mig vita, því ég ætla að reyna að virkja tölvupóstinn þegar eitthvað er um að vera.


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 13:09:39 / kag

Keiluferðinni FRESTAÐ !!!!

Jæja þar sem þáttakan fyrir keilu ferðinni á föstudag var svo rosalega mikil.. NOT

 

Þá frestast Keilan þangað til á SUNNUDAGINN Kl 19:30

 

Kv Karen #202


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 18:43:05 / Erna

GAS GAS EC200 TIL SÖLU

Til sölu gas gas ec200 cc. árg 2004 Hjól í toppstandi, er á hvítum númerum! verð. 440þús Uppl. s. 664-0370

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 16:16:01 / kag

Jæja stelpur 2008 fer að ganga í garð, eruði ekki til í hitting í janúar? Var að spá í 17 eða 18 janúar......Hvað segið þið ?

 Eruði mega duglegar að hjóla núna ? Hvert fariði að hjóla ?


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 22:32:50 / silja13

YZF 250 til sölu

Til sölu Yamaha YZF 250 2004

tilboð óskast =D  lítið notað stelpuhjól, bara einusinni kept á því.

upplýsingar í síma 6920316 eða  8681423

(silja13@hotmail.com) get sent mynd á msn.  


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 09:00:04 / kag

Til sölu gírtaska

Til sölu flott bleik Sick Racing gírtaska (taska fyrir mx fötin og skóna, hjálminn bara allt!)

 Verð 8 þúsúnd

 Uppl í síma 894-2329


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 17:53:07 / Ragnhildur

Til sölu Honda CRF150 og Yamaha YZ205F

Sælar stelpur! :)

Þá er komið að því að selja gripina vegna hugsanlegra íbúðakaupa :/

Honda CRF150 árgerð 2004. Snilldar byrjenda/stelpuhjól.
Keyrt ca. 15 tíma.
Verðhugmynd 280 þús. ekkert ákvílandi

Myndir:
http://public.fotki.com/dreitill/honda-crf/ 
En þetta eru einu myndirnar sem ég á að því í augnablikinu. 

Einnig er kærastinn að selja sitt hjól...

Yamaha YZ250F árgerð 2007, 50 ára afmælistýpa
Kemur með gulum plöstum (eru ný ónotuð;) en er með hvítum oneind plöstum og límmiðakitti.
Keyrt ca. 10 tíma
Verðhugmynd 780 þús. ákvílandi ca. 700.

Bæði hjólin hafa fengið mjög gott viðhald og skipt um olíu á 5 tíma fresti.

Frekari upplýsingar í maili abrina_lena@hotmail.com">sabrina_lena@hotmail.com eða s:848-0894, Ingi.

kv. Ragnhildur


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 14:31:41 / Hafdís

Árshátíð VÍK

HÆ stelpur!

Jæja hvað syngur í ykkur stúlkur mínar? 

Nú fer senn að líða að árshátíð VÍK og öllu sem því fylgir.. gleði gleði gleði!  Mig langaði svona aðeins til að forvitnast um það hverjar ætla að mæta?? Er ekki gríðalegur stemmari fyrir þessu??

Svo er það annað, hverjar eru að hjóla þessa dagana?? Það er loksins komið að því að ég megi fara að hjóla aftur og það væri rosa gaman ef við myndum smala saman nokkrum stelpum og fara að hjóla saman :) ;) Hafa almennilegan hjóla-hitting!

En jæja endilega kommentiði hverjar eru til í tuskið :) ;)

Kv. Hafdís #117 


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 10:47:36 / Hafdís Mjöll

Þykkvibær

 

Hæhæ stelpur

 Mig vantar smá upplýsingar um þykkvabæ, ég er að pæla í að fara að hjóla þar um helgina og hef aldrei farið. Þarf ég að láta vita eða borga einhverstaðar áður en ég fer í sandinn ? Hvernig fer maður niður að sandinum ? Er gott að hjóla þarna fyrir byrjendur (er sandurinn erfiður) ?

 

Endilega segið mér ef þið vitið þetta.... :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.10.2007 18:22:12 / tedda

Bretland, Langisandur ofl.

Hæ stelpur

Mig langaði bara til að fara gróflega yfir það sem er búið að vera að gerast hjá okkur undarfarið.

Við vorum 4 "stelpur" sem kepptum í UK Girls National þetta árið, Karen, Aníta, Signý og ég.  Guðfinna og Eyrún voru búnar að skrá sig í keppnina en handleggsbrotnuðu báðar, mjög leiðinlegt.   En allavega fórum við og þegar við skoðuðum brautina sem við höfðum ekki séð áður þá fengum við smá skjálfta því að hún leit út fyrir að vera mun erfiðari en brautin sem vorum í í fyrra.  Stórir pallar og harðari jarðvegur.  Þessi skjálfti reyndist algjörlega óþarfur því að brautin var frábær og veðrið alveg æðislegt(eins og reyndar alltaf).  Árangur stelpnanna var flottur en keppinautar þeirra voru mun sterkari en í fyrra.  Karen endaði í 15. sæti, Signý í 17. sæti og Aníta í 21. sæti.  Í þessum flokki voru 33 stelpur.  Ég endaði í 4. sæti en við vorum 7 í mínum flokki, en þetta árið var gamlingjaflokkurinn settur saman við Pro Open en í honum eru stóru hjólin.  Þetta var alveg frábær ferð í alla staði enda skemmtilegir ferðafélagar, og alveg á hreinu að það verður farið að ári.  Nú er bara að fara að safna stelpur!!!

Keppnin á Langasandi var frábær framlenging á sumrinu og tókst hún vel í alla staði.  Fullt af stelpum kepptu og stóðu sig vel.  Bara skemmtilegt.

Framundan er síðan keppni í Texas hjá okkur Anítu og Karen og sendi ég ykkur úrslitin eftir keppnina en hún er 21.-24. nóvember.  Hvet ég ykkur allar til að hjóla sem mest í vetur og halda ykkur við.  Þið voruð að standa ykkur frábærlega og geggjað hvað við vorum margar á línu.

Góða skemmtun á árshátíðinni, þið sem ætlið, en við Haukur verðum í Svíþjóð þar sem hann er að fara að keppa í Enduro.

Sjáumst hressar
Tedda Nítró

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 23